sjitt það eru að koma jól
mamma og pabbi komu óvænt í bæinn í gær rosalega gott að sjá þau , hitti reindar mömmu frekar oft því hún tollir svo illa heima en því miður sér maður ekki nóg af pabba
Dagbjartur alveg elskar þennan afa sinn, pabbi er alltaf svo rólegur egilega hálf meðvitundarlaus og Dagbjartur hefur alltaf verið svo hrifin af honum fyrstu skiptin sofnaði hann allaf hjá honum en núna una þeir sér vel saman í einhverju dundi
einsog í gær þá lagðist pabbi á gólfið inni í herbergi hjá honum og las fyrir hann kvæði eftir Hákon Aðalsteinsson og dagbjartur klifraði á honum
reindar var þetta frekar stór dagur hjá okkur því að við fórum með ömmu ósk og Karítas að veiða okkur jólatrá
og Dagbjartur gekk með smá aðstoð upp stóra brekku svo þegar jólatrén voru komin í hús og kakóið í malla´kútinn þá fórum við og kíktum á Hestana hjá afa eyþóri
Dagbjartur var nú ekki neitt alltof hrifinn
eða honum fanst þeir flottir úr fjarlægð en ekki þegar hann var settur á bak 
en í dag er ég búin að strauja 3 spariskirtur og mönnunum mínum góðu og svo þegar að LEIKURINN er búin þá ætlum við litla fjölskildan að fara í jólaþorpið hérna í hafnarfirði
túrúlú